3G er að hverfa
Tæknin er orðin gömul og hentar ekki lengur þörfum nútímans. Með því að loka 3G verður meira pláss fyrir hraðari og öruggari 4G og 5G þjónustu.
3G farsímakerfið er á útleið. Tæki sem treysta eingöngu á 3G geta misst samband og í sumum tilvikum ekki getað hringt símtöl eða neyðarsímtöl. Þess vegna er mikilvægt að fara yfir eldri tæki tímanlega og athuga hvort þau styðja 4G VoLTE eða 5G.
Leitaðu að framleiðanda eða tegund tækis til að kanna hvort það sé á listanum yfir studd tæki.
Byrjaðu að slá inn nafn framleiðanda eða tegundar. Þú getur leitað með stuttum leitarorðum eins og A17 og þá birtast öll tæki sem passa við leitina.
Tæknin er orðin gömul og hentar ekki lengur þörfum nútímans. Með því að loka 3G verður meira pláss fyrir hraðari og öruggari 4G og 5G þjónustu.
Eldri tæki sem nota 3G geta misst farsímasamband og í ákveðnum tilvikum ekki getað framkvæmt símtöl eftir lokun kerfisins.
Best er að fara yfir tæki sem fyrst og skipta út eða uppfæra þau sem styðja ekki 4G VoLTE eða 5G.
Ekki bara farsímann. Mörg tæki vinna hljóðlega í bakgrunni en nota samt farsímakerfi. Þar leynist oft vandinn.
3G kerfið er að verða tekið úr notkun. Þegar því verður lokað geta tæki sem reiða sig eingöngu á 3G misst samband eða hætt að geta hringt símtöl.
Ástæðan er sú að 3G er orðin úrelt tækni. Með því að færa notkun yfir á 4G og 5G fæst betri þjónusta, meiri hraði og stöðugra samband.
Það á sérstaklega við um eldri farsíma og önnur tæki sem styðja ekki 4G VoLTE, til dæmis sum snjallúr, öryggiskerfi, hliðastýringar og önnur tengd tæki.
Athugaðu hvort tækið þitt styður 4G VoLTE eða 5G. Ef ekki gæti þurft að uppfæra stillingar, skipta um SIM eða endurnýja tækið.
Já. Við hjálpum þér að fara yfir stöðuna og finna hentuga lausn fyrir tækið þitt eða þjónustuna sem þú notar.
Komdu með tækið til okkar, hafðu samband eða fáðu ráðgjöf um hvaða lausn hentar best þegar 3G hverfur.